Vörutorg

Auglýsingar

Fréttabréf

Skilmálar Vörutorgs ehf.

Innsláttarvillur: Engin ábyrgð er tekin á innsláttarvillum, myndbrengli eða röngum og úreltum upplýsingum, þó reynt sé eftir megni, að hafa síðuna sem réttasta.

Verð:
Verð á vörum á vefsíðu vorutorg.is, er staðgreiðsluverð m.vsk. Verð getur breyst, án fyrirvara. Afgreiðslufrestur: Í flestum tilfellum er afgreiðslutími pantana innan eins sólahrings en getur tekið nokkra daga. Afhending vöru er með Íslandspósti. Kaupandi greiðir flutningskostnað.
Einnig er hægt að sækja vöruna í verslun okkar að Kirkjulundi 17 210 Garðabæ. Reynist pöntuð vara vera ófáanleg áskilur vorutorg.is sér rétt til að hætta við pöntunina.

Ábyrgð:
Ábyrgð nær til framleiðslugalla og efnisgalla á vörum sem seldar eru hjá vorutorg.is. Ábyrgðartími er í tvö ár frá útgáfudegi reiknings sem jafnframt gildir sem ábyrgðaskírteini. vorutorg.is ber á engan hátt ábyrgð á slæmri eða rangri meðhöndlun vörunnar eða skemmdum í flutningi. vorutorg.is er ekki ábyrgt fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðrar vöru.

Komi fram áætlaður galli á vöru, skal kaupandi tilkynna það á vorutorg@vorutorg.is Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, taka fram númer á sölureikningi og vorutorg.is mun senda til baka ábyrgðarnúmer.

Kaupandi skal þá senda vöruna til:
Vörutorg ehf Kirkjulundi 17 210 Garðabæ ásamt reikningi og merkta ábyrgðanúmeri. Vörutorg metur vöruna m/tilliti til galla og eftir ástæðum gerir við vöruna, eða skiptir henni út Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð.

Vara fellur úr ábyrgð ef annar en Vörutorg gerir við vöru eða gerir tilraun til viðgerðar.

Skilaréttur:
Skilaréttur er í 14 daga frá útgáfudegi reiknings á vörum sem eru pantaðar í gegnum vefverslun Vörutorgs. Vöru sem er skilað skal vera í upprunalegri pakkningu og ástandi, órofið innsigli og allir fylgihlutir með. Vörutorg áskilur sér rétt til að yfirfara vöru áður en hún er tekin til baka. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag, þó ekki á hærra verði en upprunalegu verði vörunnar.

Vorutorg.is er ekki heildsala og áskilur sér rétt til að hafna magnpöntunum.

Eignaréttarfyrirvari:
Hið selda er eign Vörutorgs þar til verð er að fullu greitt. Samþykktir víxlar, skuldabréf eða greiðsla með ávísunum afnema ekki eignaréttinn fyrr en full greiðsla hefur borist.

 

Sendingar:

Ekki eru sendar heim pantanir án endurgjalds ef upphæð er undir 5000kr. Allar vörur sem pantaðar eru af heimasíðu Vörutorgs ehf og eru undir 5000kr verða sendar með pósti og er sendingarkostnaður á ábyrgð þess sem pantar. Ef sending fer með pósti má búast við að hún sé 2 virka daga á leiðinni. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu er ávallt næsta virka dag eftir að pöntun er gerð.


ForsíðaForsíða

Karfa  

(tóm)

Nýjar vörur

Engar nýjar vörur í augnablikinu

Mest keypt

  • 5 + 2
  • Kviðbelti með hliðarvirkni
5 + 2
Kauptu 2 pakka og fáðu 10%...
Kviðbelti með hliðarvirkni
Ótrúlega öflugt belti sem...
Skyrtupoki fyrir herðatré
Poki sem heldur allt að 7-8 skyrtum...
Kjólapoki fyrir herðatré
Kauptu 2 pakka og fáðu 10%...
Kubburinn
Frí heimsending á...

Allir mest keyptu hlutirnir